Yoa Spóa Spýturófa
Hvad skal man sige?
1.9.06
16.5.06
Madonnas hitparade
- Hung Up
- Where's The Party
- La Isla Bonita
- Music
- Love Profusion
- Get Together
- Isaac
- Erotica
- Nothing Really Matters
- Jump
- Everybody
- Dress You Up
- I Love New York
- Holiday
- Bedtime Story
- Hollywood
- Skin
- Ray of Light
- Sorry
- Borderline
- Keep the Trance (nýtt lag)
- History (nýtt lag)
- Lika a Virgin
Hej hej Yoa
15.5.06
Sumarið er tíminn ...... til að fara á Madonnu tónleika





Já mér tókst það, ég var farin að örvænta og var orðin viss um að það myndi ekki takast þar sem allt virtist vera á móti mér en MÉR TÓKST ÞAÐ (nei ég er ekki enn komin í kjörþyngd) ......
en ég fékk miða á MADONNU TÓNLEIKANA sem verða hér í Horsens 24. ágúst. Ég fékk 6 miða (mátti bara kaupa 6) og munu mamma, pabbi, Björk og auðvitað EVA brjálaði MADONNU faninn koma til mín í ágúst og við förum öll saman á tónleikana. Þau verða hjá mér í 5 daga og þið getið rétt ímyndað ykkur spennuna sem á eftir að magnast hjá okkur. Og vitiði þetta er í fyrsta skipti sem við 5 gerum eitthvað svona saman. Þannig það gerir þetta enn skemmtilegra.
Það sem ég mátti leggja á mig til að fá þessa miða, mér finnst ég eiga hrós skilið. Fyrir það fyrsta var miðasölunni seinkað um eina viku þannig það hittist þannig á að ég átti dagvagt (miðasalan hófst á laugardegi kl. 9.30 og var löngu vitað að maður þyrfti að standa í röð). Ok ég reddaði því með því að biðja Hörð að standa í röðinni fyrir mig sem var ekkert mál að hans hálfu (hélt að þar með væri ég sloppin) nei nei auðvitað varð hann lasinn á föstudeginum og fékk þessa fínu magapest þannig það var ekki séns að hann gæti staðið í röðinni. Ok, ég reddaði þessi með því að biðja Arnheiði vinkonu mína að standa í röðinni fyrir mig frá kl. 7.00 svo ég gæti farið að vinna. Og á hún margar þakkir fyrir, takk Arnheiður. Ekki nóg með að ég væri að fara vinna heldur var afmælishátíð spítalans þennan dag (hann er 30 ára um þessar mundir) og var party og svo veisla beint eftir vinnu, þetta var ég auðvitað löngu búin að skrá mig í. Ég hugsaði bara: Jóhanna þú ert ekki orðin 30 þú hlýtur að geta reddað þessu öllu saman. Sem og ég gerði auðvitað. Ég vaknaði sem sagt kl. 04.00 og við tvær vorum mættar í röðina kl. 4.30, og vÁ hvað ég var glöð að sjá að við vorum númer 4 í röðinni, mér hafði nefnilega reiknast það til að það mættu standa ca 50 í röð við hverja FONA búð í Danmörku til að ég fengi miða, miðað við að allar búðirnar fengju jafn marga miða.
Ég fór svo beint úr vinnunni í partý og þaðan í svaka afmælisveislu með 1000 gestum og drakk mig blindfulla og kom ekki heim fyrr en eftir kl. 01. (NB ég vaknaði kl. 08 morguninn eftir) GERI AÐRIR BETUR. Enda fékk ég mikið hrós fyrir í vinnunni og allir samglöddust mér með miðana mína sem eru núna læstir í bankahólfi, enda hefur verðgildi þeirra aukist til muna. heheh
Tréin hérna blómgast með æðislega fallegum blómum og í alls kyns litum, þessi eru bara brot af því sem er hér í kringum okkur, þetta hvíta er eins og tré með fallegum jólasnjó og hitt er nú bara eins og úr ævintýri, það er víst kirsuberjatré heldur Hörður fram.
Sumarið er sko tíminn hér í Danmörku, Danir segja að sumarið sé komið þegar hitinn fer einhvers staðar yfir 25°C. Það gerðist sem sagt í síðustu viku, ekki reyndar hér í Herlev en það fór ansi nálægt því. Síðasta vika var æðisleg, en samt ekki formlega komið sumar hér í Herlev.
Hér erum við mæðginin eftir einn sólardag úti.
Hörður greyið er enn hvítur sem næpa enda hefur hann ekki átt sjö dagana sæla undanfarið, skólalega séð. Alveg merkilegt með flesta skóla hvernig þeir þurfa að hrúga allri vinnu á einn mánuð, eða svo að segja. Stór verkefni og próf í sömu vikunni. Hann tók sér samt frí einn laugardaginn og tók þátt í pókermóti í skólanum, og auðvitað rústaði hann því :Þ Eini gallinn var að á þessu móti mátti ekki spila uppá peningana svo hann dróg ekki neina björg i bú. Ekki nema pókersett sem vegur hálft tonn og fínt grænt borðteppi teljist sem einhver björg. Ég vil meina að þetta teppi væri fínt á ströndina en hann vill ekki heyra það :S
Við erum bara annars komin í sumarskap hérna fyrir sunnan, merkilegt hvað allt breytist þegar sólin fer að skína, það verður allt í einu fullt af fólki alls staðar og allir eitthvað svo kátir og skrafhrifnir. Ég er ekkert að kvarta, finnst þetta dásamlegt allt saman, vildi óska að ég yrði brún en ekki rauð, það er það eina sem ég er ósátt við. Danska sumarið það nær hápunkti í ágúst, svo enn eru margir mánuðir af sumri eftir.
Bestu kveðjur Yoa
27.3.06
Á Íslandi loksins
Anyways.... það er yndislegt að koma hingað og hitta alla saman á einu bretti. Við vorum í afmæli í dag hjá prinsessunni henni Helgu Katrínu. Næstu dagar fara svo í það að eyða tíma með fjölskyldu og vinum og njóta þess að vera í fríi.
Ég hef líka alveg steingleymt að greina frá þeim stórtíðindum að við fjölskyldan erum orðin stolltir eigendur þessa kagga hérna:
Við erum búin að eiga hann í næstum tvær vikur núna og OMG mér líður nákvæmlega eins og þegar ég var nýkomin með bílprófið mitt. Þvílíkur léttir maður, það er ekki lengur kvöl að þurfa útí búð, nú bíð ég ekki með það þar til ísskápurinn er næstum tómur heldur getur maður skroppið eftir einni mjólk eða brauði eða jú neim it. Hann var sem sagt aðallega keyptur í matarinnkaupin (hmmm??), en nú opnast fyrir manni óteljandi möguleikar og getum við nú gert margt sem var ómögulegt áður eða tók allavega þrjú ár að framkvæma.
Mér finnst við hafa verið heppin með bíl, ég varð náttúrulega að hafa pabba með í þessu og var það annað hvort Toyota (sem eru sky-high dýrar hér) eða VW Golf (aðeins billegri) sem kom til greina. Og sko það átti að vera VW golf með 1.6 vél og ákveðin árgerð sem kom til greina, því pabbi hefur komist að því með alla sína reynslu að þeir hafa reynst mjög vel, bila sjaldan og reynast mjög vel. Þannig þessi skilyrði varð bíllinn að uppfylla og takmarkaði það nú ansi mikið leitarniðurstöðurnar hjá mér. Ég fann svo þennan kagga, keyrðan 87 þús, 1996 árg. og með gamla þýska konu (sem er einnig mjög stór kostur segir pabbi, því Þjóðverjar eru svo sparsamir og ég veit ekki hvað) sem eiganda í 9 ár. Við keyptum gripinn á 55 þús danskar og erum við þokkalega sátt. Útgjöld heimilsins aukast auðvitað töluvert við þetta en ég held við munum ekki sjá eftir þessu, það mun bara koma í ljós en enn sem komið er svíf ég í sæluvímu og hlakka til að láta sækja mig á flugvöllinn. Bye bye S-tog!!!!
ooooooooooooooo - oooooooooooooooooo
Vaktirnar í vinnunni gengu mjög vel og mér finnst það ánægjuleg tilbreyting frá þessum venjulegu dagvöktum. Ég er ennþá frekar óörugg með að taka símann og var það eina sem olli mér hugarangri á vöktunum, en þær voru nú svo elskulegar og sýndu mér fullan skilning og slapp ég því alveg við símann á þessum fyrstu vöktum en næste gang ........ :S
Jæja best að drífa sig í háttinn, sjáumst Jóhanna
5.3.06
Vont og það bara versnar
Svo gerðist það leiðinlega í gær að amma hans Harðar fékk hjartaáfall og liggur núna á sjúkrahúsi. Hörður ákvað því í skyndi að skreppa til Íslands í tvo daga, fór í morgun og kemur á mánudaginn. Ég vona innilega að gamla konan nái sér. Við Loki erum því tvö að kljást við þessa pest.
Næst þegar ég mæti í vinnunni verður það kl. 23.30 á mánudagskvölið, jey hlakka svo mikið til.
Pestarkveðjur Yoa
1.3.06
Hversu tussulegur getur maður orðið?
Á sunnudaginn var stóri dagurinn hjá mér og Arnbjörgu og súrmatstunnan tekin upp, áttum líka hákarl, harðfisk, rúgbrauð og flatkökur. Þessu var svo skolað niður með köldum bjór. 3 tímum eftir kræsingarnar kárnaði gamanið hjá mér og ég stóð varla úr rekkju næstu tvo sólarhringana, og þá bara til að bjarga rúminu mínu frá stórslysi. En vá það var eins og ég hefði orðið fyrir valtara. Þvílíkir magakrampar (sem eru reyndar ennþá nema bara miklu vægari), vöðvaverkir, höfuðverkur og svo þessi fíni niðurgangur. Úff hvað þetta er búið að vera erfitt að komast í gegnum, ég hef reyndar sofið mest allan tímann sem hefur hjálpað mikið. Núna er ég öll að koma til og stefni að að mæta í vinnuna á morgun eftir 3 daga fjarveru.
En ég er mikið búin að spá í hvort þetta var bara tilviljun að ég át þorramatinn og veiktist svo nokkrum tímum seinna eða hvort ég hafi sýkst eitthvað af honum. En Arnbjörg kenndi sér einskis meins svo mér finnst hæpið að það hafi verið maturinn. En nú hef ég ekki mikla lyst á þorramat og við eigum ennþá helminginn eftir plús við fáum kæsta skötu næstu helgi. En það er nú annar handleggur. Vá hvað við erum klikkaðar.
Gaman að segja frá því að Loki var alveg gáttaður og vildi fá að sjá þennan hákarl sem við ætluðum að borða. Hann greip í höndina mína rétt áður en ég sýndi honum hákarlsbakkann og sagði: Mamma, er hann lifandi??? OMG ég hélt ég myndi deyja.
23.2.06
Ein í kotinu
Mamma er líka lasinn þannig þau liggja saman greyin.
Annars styttist nú í að ég komi í heimsókn, við Loki eigum bókað far 25. mars til landsins og verðum í átta daga. Mig hefur aldrei hlakkað svona mikið til að koma í heimsókn, enda 6 mánuðir síðan ég var á klakanum kalda. Sem er ekki réttnefni því það er mun kaldara hér um slóðir en á Íslandi. Mér finnst samt eins og vorið liggi í loftinu núna, það er líka miklu bjartara, meira að segja bjart þegar ég mæti í vinnuna, það finnst mér æði.
Annars er búið að vera nóg að gera hjá mér í skemmtanalífinu hérna, þannig nú er ég búin að segja stopp fram að Íslandsförinni. Ég fór á Þorrablót Íslendingafélagsins það sem hljómsveitin Sixties lék fyrir dansi. Við fórum reyndar á kínverskan stað á undan blótinu. En ég klikka ekki á því á næsta ári að fara í matinn líka. En við Arnbjörg eigum reyndar þorramat sem verður borðaður við gott tækifæri sem fyrst. Svo er búið að vera fullt af partýjum og fylliríum hérna það vantar ekki.
Nú er ég að ljúka lærlingstímanum mínum í vinnunni og tek fyrstu vaktirnar mínar eftir rúma viku. Jey.
Við Hörður erum búin að ákveða að kaupa okkur bíl hérna. Ætlum nú ekkert að vera stórtæk, leita okkur að bíl á bilinu 30.000 -50.000 danskar. Ég vona að við verðum búin að ganga frá því áður en Hörður fer að vinna á Íslandi í sumar, ég meika ekki að vera ein og bíllaus hérna.
Læt þetta nægja í bili, Yoa









